|

Drangaskörð eru eitt af mest áberandi
náttúrufyrirbærum landsins norðan Drangavíkur.
Þau ganga fram úr Skarðafjalli milli Drangavíkur og Dranga og
ganga um þau er ógleymanleg.
Drangavík
og Drangar draga nöfn sín af Drangaskörðum.
Þau sjást mjög víða að og laða fólk til sín.
Flestir þekkja þau með nafni en fæstir kunna nöfn skarðanna
milli þeirra og fjöldi dranganna veldur deilum.
Flest bendir til, að þeir, sem bjuggu næst þeim hafi talið
þá fimm, þótt tveir þeirra séu klofnir.
Fjölfarnasta leiðin um Drangaskörð var Signýjargata um Signýjargötuskarð, sem er yzt og Litlitindur utar.
Á veturna var stundum farið um Kálfskarð á milli klofnu
dranganna tveggja, þegar ís og harðfenni var yfir öllu.
Sjaldnast var farið um önnur skörð. |