|

Drangavík
er sunnan Drangaskarða, milli Hrúteyjarness og Engjaness.
Drangavíkurdalur teygist upp í hálendið og áin, sem er
samnefnd víkinni, fellur niður í dalinn í fallegum fossi.
Víða í árbökkunum sést forn rekaviður, sem og víðar á
þessum slóðum.
Ágætis silungsveiði er í ánni, mikill reki með ströndinni,
dágott æðarvarp og selveiði.
Bærinn
Drangavík fór í eyði árið 1947 en bæjarhúsin eru komin að
hruni.
Víða á Ströndum hafa hvítabirnir gengið á land.
Árið 1932 lá við óhappi í slíku tilfelli í Drangavík, þar
sem heimamenn áttu sér einskis ills von.
Fólkið náði að forða sér í hús og Guðmundi Guðbrandssyni,
bónda, tókst að skjóta dýrið. |