|
Dvergasteinn er bær við norðanverðan
Seyðisfjörð. Þar var áður kirkjustaður og prestssetur. Kirkjan
var flutt að Vestdalseyri fyrir aldamótin 1900 og síðar, árið
1920, inn á Fjarðaröldu, þar sem hún stendur nú. Prestssetrið
var á Dvergasteini til ársins 1928. Síðasti presturinn þar var
séra Sveinn Grímsson Víkingur. Katólskar kirkjur á Dvergasteini
voru helgaðar Maríu guðsmóður. Niðri í fjöru neðan bæjar er
stór steinn, sem líkist húsi í lögun. Sagan segir, að þessi
steinn og kirkjan hafi staðið hlið við hlið sunnan fjarðar.
Þegar kirkjan var flutt norður yfir, kom steinninn siglandi á eftir
henni yfir fjörðinn.
Alfaraleið yfir Hjálmárdalsheiði til
Loðmundarfjarðar lá frá Dvergasteini fyrrum. Núna er hún
fáfarin en ein margra slíkra gönguleiða, sem eru upplagðar fyrir
göngugarpa nútímans. Páll Ólafsson, skáld, fæddist á
Dvergasteini. |