|
Dyngjuháls er allbreiður og langur hryggur, sem teygist í átt til Trölladyngju
undan vestanverðum Dyngjujökli, austan Gæsavatna. Yfir hann liggur u.þ.b. 20 km löng
jeppaslóð, sem hverfur stundum undir stóra snjóskafla á austanverðum
hálsinum. Skaflarnir og Flæðurnar austan Urðarháls eru einu torfærurnar, sem
geta valdið fólki erfiðleikum á Gæsavatnaleið. Hæsti hluti jeppaslóðarinnar yfir
hálsinn er í 1222 m hæð yfir sjó.
Eftir endilöngum hálsinum liggja fimm
gígaraðir, þannig að þetta litla svæði mun vera hið eldbrunnasta á landinu.
Eldsprungurnar á Dyngjuhálsi eru 5-10 km langar og framhald þeirra er að finna norðan
Trölladyngju. Frá þessum sprungum hafa runnið hraun suðvestur í Vonarskarð og
norður með Skjálfandafljóti austanverðu niður í Marteinsflæðu og Hraunárdal.
Gæsavötn
25 km <Dyngjuháls> Kistufell
5 km. |