|
Dynjandisfoss er mestur fossa á Vestfjörðum. Hann
er í Dynjandisá, sem fellur í Dynjandisvog. Hún á upptök sín í
nokkrum vötnum á Dynjandisheiði, aðallega í Eyjavatni
(350m).
Dynjandi fellur niður u.þ.b. 100 m hátt og bungumyndað berg. Hann er
u.þ.b. 30 m breiður efst og 60 m neðst. Hann var aldrei nefndur
annað en Dynjandi fyrr en einstaka menn fóru að kalla hann Fjallfoss
á fyrri hluta 19. aldar.
Nöfnin Dynjandisfoss, Dynjandisá, Dynjandisvogur og
Dynjandisheiði eru forn með þessari eignarfallsmynd. Bærinn
Dynjandi stóð í nánd við ós Dynjandisár. Neðar í ánni eru
Hundafoss, Strokkur, Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss og Sjóar-
eða Bæjarfoss. Neðan við fossana eru rústir bæjarins
Dynjandi, bílastæði, tjaldstæði og salerni. |