Eldborgir
eru venjulega túlkaðar í eintölu og eru undir Geitahlíð austan
Krýsuvíkur. Suðurstrandarvegur liggur á milli þeirra og skammt er til
uppgöngu á Stóru-Eldborg. Þetta eru formfagrir gjallgígar á
suðvesturenda gígaraðar, sem skildi eftir hraun alla leið til sjávar.
Hraunið frá Litlu-Eldborg, sem er talsvert minna og austar, rann yfir
hraun Stóru-Eldborgar.