|
Eyjabakkar eru mýrlent
landsvæði upp af Fljótsdal framan við jökulsporð Eyjabakkajökuls. Þar
er talið að u.þ.b. 7000 pör heiðagæsa verpi ár hvert og áætlanir eru
uppi um að sökkva þessu svæði undir miðlunarlón vegna
virkjunarframkvæmda. Þessum áformum var mætt með hörðum mótmælum þeirra,
sem vilja ekki að stöðugt sé ráðist á ný svæði til virkjana, þannig að
allt hálendi landsins verði undirlagt. Margir, einkum Austlendingar,
lýstu yfir stuðningi sínum við þessi áform og töldu þau mundu styrkja
landshlutann með fleiri atvinnutækifærum, ef Norsk Hydro léti verða af
áformum sínum um byggingu 180.000 tonna álvers við Reyðarfjörð í
kjölfarið.
Horfið var frá þessum
áformum, m.a. vegna mikillar mótmælaöldu um land allt og lokst dró Norsk
Hydro sig í hlé og fyrirtækið afréð láta af álversframkvæmdum hérlendis,
a.m.k. í bili. Skömmu síðar hófust samningar við Alcoa um 290.000 tonna
álver við Reyðarfjörð og þeir tókust. Yfirvöld afréðu að stífla við
Kárahnjúka og framkvæmdir hófust 2002. Áætlað er að þeim ljúki 2007.
Eyjabakkarnir hafa líklega myndazt við uppfyllingu
jökullóns, sem stóð í allstórri dæld. Þar er nú víða
ótræðar mýrarflesjur vaxnar broki, stör og öðrum mýragróðri.
Sagnir herma að hreindýr hafi sést hverfa í kviksyndið.
Margar og grunnar kvíslar Jökulsár sameinast smám saman í
eina á, sem fellur niður í Fljótsdal og myndar m.a. Löginn á leið
sinni til sjávar. Hún fellur fyrst frá Eyjabökkum í fossum og
flúðum niður í djúpt klettagil, sem er upphaf Fljótsdalsins. Þar
eru m.a. Eyjabakkafoss og Kirkjufoss. Kofi leitarmanna,
Bergkvíslarkofi, er Austan Eyjabakka. Hann er ekki notaður
lengur. Annar slíkur, Hálskofi, er í undirhlíðum Snæfellsháls að
norðanverðu.
Eyjabakkajökull er austastur og minnstur skriðjökla úr norðanverðum
Vatnajökli. Hann sniglast niður Djöflaskarð, sem er austan Breiðubungu.
Framan við hann er árset og grunn lón. Hann hljóp fram samtímis
Brúarjökli árið 1890. Framskriðið vafði graslendið upp í heljarmikla
torfustranga og gróðurlendinu fjær í fellingar, sem sjást enn þá. Síðar
urðu framskrið 1931 og 1938. Jökulsá á Fljótsdal kemur undan
Eyjabakkajökli. |