|
Leiðin
yfir Fimmvörðuháls frá
Þórsmörk,
Skagfjörðsskála í
Langadal, Húsadal og
frá skála Útivistar í Básum
yfir
Fimmvörðuháls til Skóga
er 22-24 km. [frá Básum)
Uppi á hálsinum er nýlegur skáli Útivistar
og Baldvinsskáli Ferðafélags Íslands aðeins sunnar, þannig að hægt
er að skipta göngunni milli tveggja daga, 5 klst. hvorn dag.
Leiðin er vel stikuð, en bæði slóð og stikur hverfa í snjó
efst. Nauðsynlegt er að vera vel búinn, því allra veðra er
von. Árið 1970 urðu illa búnir göngumenn úti á hálsinum.
Básar-Skagfjörðsskáli 3,3 km.
20.03.10. Jafndægur að vori. Rétt fyrir
miðnættið hófst sprungugos (suðvestur-norðaustur) á
Fimmvörðuhálsinum norðanverðum, skammt vestan
gönguleiðarinnar. Sprungan var u.þ.b. hálfs kílómetra
löng og náði ekki undir jökul. Því var ekki óttast um
flóð í kjölfarið. Íbúar svæðisins undir Eyjafjöllum og
í Fljótshlíð voru fluttir brott í öryggisskyni. Þeir
fengu þó að fara heim til að sinna skepnum 21.03.10.
Vegum var lokað um svæðin. Almannavarnarnefndir sátu á
rökstólum um framhald aðgerða. Hinn 22. marz rann
hraun yfir gönguleiðina og niður í Hrunagil, þannig að
goslengd ræður því, hvenær hún verður nothæf á ný.
Hraunfossinn niður í Hrunagilið er rúmlega 200 metra hár og
út úr því rennur hraunið í átt að Krossáraurum. Mjög
slæmt veður var á Suðurlandi 22. og aðfararnótt hins 23.
marz, þannig að náttúruvísindamenn komust ekki alveg að
gosstöðvunum. Hinn 23. marz var rætt um aðgengi
ferðamanna að gosinu. Hinn 26. marz fór hraun að flæða
niður í Hvannárgil, þar sem nýr hraunfoss
myndaðist, og hélt áfram að renna niður í Hvannárgil í átt að Krossáraurum
í báðum tilfellum.
31.03.10. Um kl. 18:50 opnaðist gossprunga með nv-sa
stefnu
norðvestan nýja gígsins, nær Hvannárgili, vestan Heljarkambs.
Þaðan rann meira hraun niður í gilið. Virknin í fyrsta
gígnum hafði dregizt saman í tvo stróka í stað 12-15, sem
fækkaði smám saman í fimm og síðan færri.
Björgunarsveitir og lögregla á staðnum rýmdu svæðið við
eldstöðvarnar, lét ferja göngufólk úr Þórsmörk og Goðalandi
niður á Morinsheiði og skipaði síðan brottflutning þaðan.
Leiðum inn í Þórsmörk var svo lokað. Daginn eftir var
ferðabanni aflétt, en hættusvæði var innan fimm kílómetra
radíuss frá gosstöðvunum og fólki var ekki hleypt nær þeim
en í eins kílómetra fjarlægð.
07.04.10. Gos hætti á upprunalegu sprungunni og
var komið niður í einn gíg (strók) í hinni yngri. Ekki
var talið að hraunrennsli hefði minnkað niður í Hvannárgil,
en ekkert hraun rann lengur niður í Hrunagil.
14. apríl 2010. Skömmu eftir miðnætti hófst gos í aðalgíg
(dyngju) Eyjafjalla og flóð hófst, aðallega til norðurs út í
Markarfljót, en einnig til suðurs, niður að Þorvaldseyri.
Þjóðvegur 1 var rofinn við nýju Markarfljótsbrúna og landbrot og vegaskemmdir eru
fyrirséðar vegna flóðsins í suðurátt undir Eyjafjöllum. Í
vestanáttinni varð mikið öskufall í Skaftártungu,
Meðallandi, Landbroti og lengra austur á bóginn.
Flugstoðir gerðu áætlun um hindranir í millilandaflugi til
Norður-Evrópu (Skandínavíu) vegna öskudreifingarinnar.
Gosinu lauk hinn 23. maí 2010.
Þetta gos er talið tilheyra Eyjafjallaeldstöðinni.
Hún hefur gosið þrisvar á sögulegum tíma, árin 920, 1612 og
1821-23. |