|
 Skaftfellingar nefna þessa leið Fjallabaksveg og telja það
eldra og réttara. Hún liggur á milli Landsveitar og
Skaftártungu norðan Heklu og Torfajökuls. Þetta er einhver
litskrúðugasta og fjölbreyttasta hálendisleið landsins. Í
þurrkatíð er hún akfær flestum bílum, en þó er betra að hafa
fjórhjóladrifið við höndina. Frá Sigölduvirkjun liggur 26 km
löng leið suður í Landmannalaugar. Sé hin rétta
Fjallabaks- eða Landmannaleið ekin upp úr Landsveit til austurs, er haldið upp
Sölvahraun og beygt til hægri við vegprestinn, sem segir
Dómadalsleið.
Þá er ekið
á milli Hekluhrauna og hlíða, um Lambahraun, yfir óbrúaðar sprænur, um Kringlu og
Dómadal. Þá kemur Frostastaðavatn, þar sem leiðin kvíslast í þrjár áttir. Til
vinstri liggur leiðin að Sigöldu, beint áfram að Ljótapolli og til hægri til
Landmannalauga eða áfram austur í Skaftártungu. Jökulgilskvísl, sem var versti
farartálminn á leiðinni hefur verið brúuð. Austan hennar er ekið um Kýlinga, við
rætur Kirkjufells, um Illagil og Jökuldali að Herðubreiðarhálsi. Þar opnast
útsýnin til austurs yfir Eldgjá og Lakagíga á Síðuafrétti. Einnig sést til Langasjávarsvæðisins,
Fögrufjalla og Tungnárfjalla og inn á Vatnajökul vestanverðan. Síðan
er haldið niður í Eldgjá, yfir Syðri-Ófæru og niður
Skaftártungu.
Skálar eru víða á
leiðinni, s.s. í Landmannahelli, Landmannalaugum, Kýlingum og Hólaskjóli. Það er
óhætt að fullyrða, að þessi landshluti lætur engan sem um hann fer, ósnortinn.
Austurleið hf. heldur uppi áætlunarferðum um Fjallabaks- eða Landmannaleið á
hverjum degi á sumrin með viðkomu í Landmannalaugum og Eldgjá.
.
|