|
Þessi leið tengir Rangárvelli og Skaftártungu. Hún hefst við Keldur á
Rangárvöllum, sé ekið til austurs. Þaðan er haldið upp með Eystri-Rangá um
Laufahraun að Laufafelli, yfir Markarfljót hjá Launfit, austur
að Álftavatni, þar
sem eru tveir skálar Ferðafélags Íslands, og í Hvanngil. Þar er
góður gangnaskáli. Rétt
austan við Hvanngil er ekið yfir Mælifellssand að Brytalækjum, þar sem leiðin
skiptist. Ein liggur til byggða, svokölluð Öldufellsleið meðfram Hólmsá
vestanverðri niður Álftaverið, önnur liggur um vað á Hólmsá að Snæbýli í
Skaftártun<<Selection in Document>>gu og út á Landmannaleið við Lambaskarðshóla og hin þriðja liggur líka
um Hólmsárvað og Álftavatnskrók niður í Eldgjá. Vestari hluti gamla reiðvegarins lá nokkru
sunnar, um Hungursfitjar, og var venjulega riðinn á u.þ.b. 20 klst.
Leiðin neðan úr
Fljótshlíð, sem liggur um Emstrur, tengist Miðvegi á vestanverðum Mælifellssandi.
Á meðan Skaftfellingar þurftu að sækja verzlun til Eyrarbakka, var leiðin
fjölfarin, enda eru fáar torfærur á henni.
Langvíuhraun. Miðvegur liggur frá Keldum
á Rangárvöllum upp með Ytri-Rangá og yfir hluta af þessu hrauni, sem
var úfið og gróft áður en það fylltist af vikri í Heklugosinu 1947.
Krókur er áfangastaður á Laufaleitum.
Hann er nokkuð langur tangi austur úr suðurenda Faxa, milli
Markarfljóts og Hvítmögu. Á Króki er leitarmannaskáli. Vað
á fljótinu í Króki er oftast illt yfirferðar og alófært í miklum
vatnavöxtum. Greiðar bílaslóðir liggja frá Hungursfit
(leitarmannaskáli) inn á Krók. Þetta er fallegt svæði með
háfjallagróðri.
Laufaleitir eru afréttur Rangvellinga milli Tindfjalla- og
Torfajökuls. Markarfljót skilur milli þeirra og
Skaftártunguafréttar. Laufaleitir eru rýrar til beitar,
eyðisandar og fjallendi, enda benda nöfn eins og Hungurfit og
Sultarfit til þess. Bæði Hekla og Katla hafa stuðlað að
gróðurleysinu.
Laufafell (1264m) er ríólítfjall á Laufaleitum, girt hamrabelti
efst.. Vestan þess er ríólíthraunið Laufahraun, sem er líklega
runnið eftir landnám. Grænavatn heita þrír gíganna í
gígaröðinni, sem það rann frá.
Svartahnúksfjöll (901m) eru fjalllendi austan Torfajökuls
(Svartihnúkur 889m). Þau eru brött og gróðursnauð. Eldgjá liggur
í gegnum þau og inn undir Mýrdalsjökul. Þarna eru upptök
Tungufljóts og Hólmsá rennur úr Hólmsárlóni við rætur þeirra í
Hólmsárbotnum.
Torfahlaup yfir Markarfljót hjá Grænafjalli. Sagt er að
maður að nafni Torfi hafi numið brott stúlku og frændur hennar hafi
veitt honum eftirför. Hann átti engan annan kost en að stökkvar
yfir þrengsta hluta gljúfursins til að komast undan og það tókst.
Bróður (föður) stúlkunnar tókst ekki stökkið og hékk á hríslu á
blábrúninni. Stúlkan vildi, að Torfi hyggi á hrísluna, en hann
bjargaði manninum. Þeir sættust heilum sáttum og Torfi fékk
stúlkuna sína. Önnur örnefni, Torfrjökull, Torfatindur,
Torfamýri, Torfafit og Torfavatn eru sögð tengd þessum sama Torfa og
Blesamýri og Faxi hestum hans.
Torfajökull
.
|