|
Flugumýri
er bær og kirkjustaður í Blönduhlíð.
Kirkjan, sem þar stendur, var vígð árið 1930.
Meðal merkra manna, sem bjuggu á staðnum var Þórir dúfunef,
sem nam land á milli Glóðafeykis og Djúpár, og bærinn var kenndur
við forláta meri hans Flugu, sem var allra hesta skjótust.
Þar bjó líka um tíma Gissur Þorvaldsson, þegar Flugumýrarbrenna
varð u.þ.b. 25 manns að bana.
Sturlunga
lýsir þessum atburðum, þegar óvinaher kom að bænum árið 1253
til að standa yfir höfuðsvörðum Gissurar.
Frægt er, hvernig Gissur komst lífs af með því að fela sig
í sýrukeri.
Bæjarbrennan kom í kjölfar brúðkaups Halls, sonar Gissurar,
og Ingibjargar, dóttur Sturlu Þórðarsonar sagnaritara.
Kona Gissurar og þrír synir fórust auk annarra, en mörgum var
gefinn kostur á útgöngu.
Snemma
á nítjándu öld var læknissetur á Flugumýri og prestafundir Hólastiftis
voru haldnir þar um skeið.
Á árunum 1880-82 var kvennaskóli þar.
Virkishóll er við rætur Glóðarfeykis.
Þar kann að hafa verið virki og minjarnar eru friðlýstar.
Flugumýri er nú mikið hrossaræktarbú og bændagisting með
margs konar afþreyingu í boði. Myndin á þessari síðu er af
vefsetri Flugumýrar og sýnir fjölskylduna þar (2007). |