|

Foss á Síðu er stórbrotið
bæjarstæði um 10 km fyrir austan Kirkjubæjarklaustur.
Fallegur foss fellur ofan af klettunum ofan við bæinn, úr
vatni sem nefnist Þórutjörn. Þetta stórkostlega sjónarspil
fangar athygli allra sem leið eiga um. Greiðfær gönguleið er
upp að Þórutjörn og þaðan er fallegt útsýni yfir Síðu.
Skammt frá Fossi á Síðu eru einnig Dverghamrar. Dverghamrar
eru sérkennilegar og fagurlega formaðar stuðlabergs
klettaborgir úr blágrýti. |