|
Gaukshöfði heitir eftir Gauki trandli á
Stöng.
Höfðinn er neðst í
Þjórsárdal
og
Þjórsá
rennur meðfram honum. Við höfðann er vað á Þjórsá, þegar
lítið er í henni, og ofan af honum er útsýni gott til
Heklu
og víðar á góðum degi.
Gaukur á stöng
var talinn vera í hópi fræknustu manna á sínum tíma. Ásgrímur
Elliðagrímsson, fóstbróðir hans, er sagður hafa verið
banamaður hans og vegið hann á Gaukshöfða. Ástæðan var sú,
að Gaukur gerði sér of dælt við systur Ásgríms. Bein og vopn
fundust framan undan höfðanum á 19. öld.
Þjóðvegurinn lá yfir
höfðann áður en hann var færður niður fyrir hann meðfram
Þjórsá.
Þjóðveldisbærinn |