|
Gautavík
er bær við norðanverðan Berufjörð.
Hann stendur þar við samnefnda vík, þar sem var lengi höfn
og kaupstaður. Rústir
hans sjást enn þá. Þær
eru friðaðar og hafa verið rannsakaðar lítillega.
Þangbrandur prestur kom þar fyrst að landi, þegar hann kom
hingað í erindum Noregskonungs til að kristna Íslendinga. Hann var þýzkur og gerðist hirðprestur Ólafs konungs
Tryggvasonar. Honum er lýst
sem ofstopamanni í Kristnisögu og ófærum til kristniboðs, enda var
hann sagður bera biblíuna í annarri hendi og sverð í hinni.
Annálar
14. og 15. alda geta Gautavíkurhafnar sem aðalhafnar Austurlands.
Þjóðverjar ráku verzlun á staðnum en færðu sig yfir fjörðinn
á síðari hluta 16. aldar, fyrst í Fúluvík og síðan í Djúpavog.
Bærinn í Gautavík varð fyrir skriðu sumarið 1792 og hjónin
á bænum fórust. |