|
Geirshólmur
er næstum kringlóttur klettshólmur, nærri Þyrilsnesi í Hvalfirði.
Hans er getið í Sturlungu og Harðar sögu og hólmverja.
Hörður Grímkelsson var foringi ræningja, sem höfðust við
á hólmanum, þar til þeir voru ginntir í land með gylliboðum og
drepnir. Herði tókst þó
að drepa 13 manns áður en hann lét lífið.
Helga
Jarlsdóttir, kona hans, treysti ekki á byggðamenn og beið í hólmanum
með syni sína tvo, fjögurra og átta ára.
Hekla synti til lands með hinn yngri á bakinu en
hinn eldri, Grímkell, synti þar til honum fataðist sundið og Helga, sem
hafði snúið við, þegar hún hafði komið hinum yngri í land, kom honum til
hjálpar. Þau komust yfir Þyril til Skorradals, þar sem skotið var
skjólshúsi yfir þau. Liðsflokkur
Sturlu Sighvatssonar settist að í hómanum um tíma á Sturlungaöld
og fór þaðan í ránsferðir. |