|
Geldinganes
teygist flatt og lágt út í Kollafjörðinn fyrir norðan og norðaustan
Gufunesið, sem það tengist með eiði, sem fór á kaf í flóði
áður en það var hækkað upp vegna framkvæmda við hafnargerð, sem
hófst árið 1999.
Nesið hefur löngum verið partur jarðarinnar Gufuness og þar
var um tíma geymdur kvikfénaður, sem var notaður til að fóðra fálka
Danakonungs á leiðinni til Kaupmannahafnar.
Öldum saman bar Íslendingum að sjá konungum fyrir fálkum og
fálkahúsið á Bessastöðum var flutt til Reykjavíkur árið 1763 og
endurbyggt á malarkambi, þar sem nú er vestasti hluti Hafnarstrætis
(1-3).
Þessi útflutningur lagðis af um aldamótin 1800, en nafnið á
húsinu „Fálkahúsið” hefur haldið velli fram á okkar daga.
Geldinganesið
var konungsgóss og var talið vera í eyði, þegar það og jörðin
Eiði voru seld árið 1840.
Árið 1924 eignaðist bæjarsjóður báðar þessar jarðir auk
Knútskots og Gufuness.
Árum saman hafði Hestamannafélagið Fákur hagabeit á nesinu. |