|
Gjábakki er
eyðibýli í Þingvallasveit, rétt austan þjóðgarðsins og misgengja
Þingvallalægðarinnar.
Leiðin um
Hrafnabjargarháls að Reyðarbarmi um Reyðarskarð og
þaðan um Laugarvatnsvellir að Laugarvatni, hefur tvo aðdraganda frá þjóðgarðinum,
svokallaða Ólafsbraut frá þjónustumiðstöðinni og Vatnsviks-
eða Vatnsvíkurleið frá Hótel Valhöll eða Þingvallabænum. Þessi vegur var niðurgrafinn og heldur
ókræsilegur, þótt fjölfarinn væri á sumrin, en hann var bættur
að einhverju leyti a.m.k. sumarið 1999 vegna fyrirhugaðra
hátíðarhalda vegna 1000 ára kristni á þingvöllum í júli
árið 2000. Á Hrafnabjargahálsi, þar sem hæst ber er frábært
útsýni yfir þingvallavatn og hluta lægðarinnar.
Árin 2008-09 var hann sneiddur suður á Lyngdalsheiði til
Laugarvatns.
Tintron. Rétt norðan vegar þar er lítil gígkeila með opi
í toppi. Þetta er klepragígurinn eða hraunketillinn Tintron, rétt
sunnan undir Litlu-Dímon. Hann er hyldjúpur og myrkur. Talið er,
að hann hafi myndazt við sjóðheitt gufuútstreymi, líkt og
Eldborgir í Lambahrauni. Nær veginum er hellir hjá Taglaflöt. Hann
er allt að 400 m langur. Á þessum slóðum er gjarnan gengið til
rjúpna á veturna og þarna er upplagt að setjast á snjósleðana
og bruna á vit ævintýranna að fjallabaki.
í Þingvallasveit, rétt
austan þjóðgarðsins og misgengja Þingvallalægðarinnar.
Á
Hrafnabjargahálsleið, þar sem
hæst ber, er frábært útsýni yfir þingvallavatn og hluta
lægðarinnar. |