|
Gjáin,
innarlega í Þjórsárdal, er meðal fegurstu vinja í jaðri hálendisins.
Gjárfoss í Rauðá, aðrir fossar og iðjagrænt umhverfið, ljá
þessari perlu mikla fegurð og aðdráttarafl.
Líklegt er, að Þjórsá hafi myndað Gjána, þegar hún rann
þarna um.
Varnargarðurinn milli Sandafells og Skeljafells varnar ánni að
renna þarna um.
Eitt
hinna yngri Tungnaárhrauna hefur náð að falla fram úr gjánni og
skilja eftir hraunlög í botni, á veggjum og brúnum Gjárinnar.
Þar gefur að líta áhugaverðar hraunmyndanir. Það
er upplagt að ganga á u.þ.b. 10 mínútum inn í Gjána frá Stöng eða
aka upp með henni og ganga niður í hana frá frábærum útsýnisstað
við veginn, sem liggur upp á Haf. |