|
Almannagjá er líklega upprunalegt nafn. Framhald
hennar er gjárnar Stekkjargjá, Snókagjá og Hvannagjá, sem teygir
sig inn að Ármannsfelli. Samtals eru þessar gjár um 8 km langar.
Suður undir Hakinu eru Hestagjá, Lambagjá og Hrútagjá, sem bera
allar samnefnið Almannagjá. Enn austar er Háagjá og Flosagjá.
Við austurjaðar sigdældarinnar eru Hrafnagjá, Guldruholtsgjá og
Heiðargjá, Brennugjá er austan valla meðfram veginum og opnast að
Öxará, þar sem vegurinn stendur á uppfyllingu í henni. Sagt er
að níu menn hafi verið brenndir í gjármynninu á 17. öld.
Flosagjá (Nikulásargjá, Peningagjá) er sunnan Spangarinnar.
Kattargjá klofnar út úr Skötutjörn, sem er framhald Flosagjár.
Kolsgjá er norðaustan Flosagjár.
Leiragjá er framhald Háugjár,
austan Tæpastígs og Leirna. Sleðaásgjá er framhald Leirugjár
inni undir Bolaklifi sunnan Sleðaáss. Vallargjá er framhald
Flosagjár frá Spangarsporði norður vellina.
Framhald
Nikulásargjár (Flosagjár) til vesturs um tún Þingvallabæjarins
eru Seigla, Túngjá og Fjósagjá. Silfra, sem er aðeins austar, er
horfið undir vatn. Þaðan kemur oftast meira vatn úr uppsprettunum
en frá Öxará. Skötugjá er framhald Flosagjár í Þingvallatúni. |