Gjögur Ströndum,

Meira um Ísland


GJÖGUR
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Gjögur er fyrrum fræg veiðistöð við mynni Reykjarfjarðar, einkum vegna hákarlaveiði á síðustu öld. En þaðan fóru oft um 15 skip til hákalaveiða samtímis. Nú er engin ábúandi á Gjögri. Norður af Gjögri er Finnbogastaðir en þar er gistaðstaða fyrir ferðamenn á sumrin. Kaupfélag Strandamanna er með útibú í Norðurfirði við Trékyllisvík. Vegakerfið á Ströndum endar við bæina Fell, Munaðarnes og niðri í Ingólfsfirði, þótt hægt sé að brölta vegleysu inn í Ófeigsfjörð.  Reglubundið póstflug er til Gjögurs og eru það einu samgöngurnar yfir vetrarmánuðina.

Skammt frá flugvellinum eru heitar laugar við sjávarkambinn, sem vert er að skoða en heimamenn, sem dvelja að Gjörgri á sumrin, biðja aðkomumenn að nota þær ekki til baða.  Bent er á laugina í Krossnesi.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM