Glerhallavík
er undir hömrum Tindastóls á Reykjaströnd, norðan Reykja.Hún er fornkunn vegna glerhallanna, sem eru holufyllingar úr
kvartsi í ævagömlum jarðhitarásum, sem finnast víða um land.Brimið og önnur veðrun losa þessa kristalla úr berginu og síðan
slípast þeir í brimrótinu.Steinataka í víkinni er bönnuð, nema leyfi hafi fengizt.Þjóðsögurnar segja, að þarna búi álfaprinsessa.