|
Glettingsnes er láglendur smátangi milli Kjólsvíkur og Hvalvíkur
norðan hins snarbratta fjalls Glettings. Þarna var afskekktasti
bærinn í Borgarfjarðarhreppi og gönguleiðin þangað varasöm á veturna.
Á fyrri hluta 20. aldar var komið fyrir vaði til stuðnings í brekkunni
niður á nesið og enn þá sjást merki um hann. Útræði var mikið
frá nesinu fyrrum, því skammt er þaðan til gjöfulla fiskimiða.
Norðan til á nesinu er nokkuð góð lending, þótt brimasamt sé.
Vitinn á nesinu var byggður 1931. Steinhúsið ofarlega á nesinu
var byggt 1933 fyrir vitavörð. Það hefur staðið mannlaust síðan
1952. |