|
Annar
hæsti foss landsins, Glymur, er í Botnsá í Hvalfirði. Botnsá er
afrennsli
Hvalvatns niður í Botnsvog. Áin steypist niður í stutt en mjög djúpt gljúfur, sem
gerir fossinn næstum 200 m háan. Botnsá skiptir
á milli Kjósar- og Borgarfjarðarsýslna.
Stuttur vogsbotninn er víða kjarri vaxinn, umhverfið
mjög sumarfagurt og hentugt til útivistar.
Það er engum ofverk að ganga upp að Glym,
sem þó sést hvergi allur, nema vazlað sé í ánni upp
gljúfrið. Það er þó hvorki á allra færi
né hættulaust vegna grjóthruns, þannig að
auðveldara og hættuminna er að skoða hluta fossins frá gljúfurbörmunum.
Alvarlegt slys varð vegna grjóthruns á hóp fólks í ferð um
gljúfrið.
Ein
af skemmtilegri þjóðsögum landsins, „Rauðhöfði", snertir
þetta svæði og gefur skýringar á nafngiftum
þar. |