|
Múlatungur
og Teigstungur fylgdu bæjum eða jörðum í Fljótshlíð og Goðaland
var löngum í eigu Breiðabólstaðar í Fljótshlíð en prestar staðarins
leigðu Austur-Eyfellingum afnotaréttinn.
Goðaland er bezti afrétturinn sunnan Krossár á milli Hrunár
og Hvannár.
Þar blasir við Réttarfell (503m) vestast.
Austar er Útigönguhöfði (805m) og Heiðarhorn.
Álfakirkjan er turnmyndaður klettur með hellisskúta í Réttarfelli
á móti mynni Langadals og austar í fellinu er klettahaus, sem heitir
Hattur.
Þá taka við Básar, þar sem Ferðafélagið Útivist er með
aðstöðu og í þeim miðjum er hæð, sem heitir Bólhaus eða Bólfell.
Básar og hlíðarnar í kring eru skjólsælt, skógi og kjarri
klætt svæði.
Brött og mosavaxin hlíðin upp af Básum er kölluð Votupallar.
Strákagil
liggur upp úr Básum austanverðum og þar liggur leiðin upp á Heiðarhorn,
Morinsheiði og Fimmvörðuháls. |