|
Nokkur
gömul útihús standa enn uppi. Til að segja fyrir um gerð nýja hússins
var fenginn norskmenntaður smiður, Páll Kristjánsson (1876-1968), sem
verið hafði yfirsmiður Húsavíkurkirkju. Húsið er tvískipt, byggt fyrir
tvær fjölskyldur og voru tveir smiðir fengnir til að smíða það eftir
teikningum Páls. Smíðaði hvor smiður sinn helming hússins.
Frambærinn er hæð með portbyggðu risi með tveimur kvistum. Grunnflötur
jarðhæðar er um 160 m2. Undir húsinu eru tveir aðskildir
kjallarar. Húsið ber keim af sveitserstíl, en það er liststíll er kom
fram um miðja 19. öld í timburhúsum og einkennist m.a. af miklu
skrauti. Búið var í bænum fram yfir miðja síðustu öld, en hin síðari
ár hefur húsið einkum verið notað sem geymsla.
Húsið hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns frá árinu 2000. Unnið var að
viðgerðum fyrstu tvö árin, en frekari framkvæmdir hafa legið niðri um
sinn. |