Grímsstaðir á Fjöllum,
Hvað á að selja!!
 allar perlur Íslands?

Jökulsárgljúfur


JÖKULSÁ á FJÖLLUM


MÝVATNSÖRÆFI



SÆLUHÚSIÐ JÖKULSÁ


SVEINAGJÁ


HROSSABORG


GRÍMSSTAÐIR á FJÖLLUM


Grímsstaðir á Fjöllum

Grímstaðir eru ásamt Möðrudal hæstu byggðu ból landsins.  Þeir voru löngum í þjóðleið og þar var lögferja áður en Jökulsá á Fjöllum var brúuð 1947.  Fyrrum stóð bærinn 7 km norðar en hann var fluttur vegna sandfoks.  Um aldamótin 2000 var opnaður nýr kafli hringvegarins, sem gerði það að verkum, að ekki er lengur ekið um hlaðið á Grímsstöðum, en vegamótin að Hólsfjallavegi til Dettifoss eru enn þá í næsta nágrenni hans.  Bærinn er u.þ.b. 45 km austan Mývatns.  Þar var bænhús í katólskri tíð og lengi hefur verið rekin veðurathugunarstöð þar.

Þjóðvegurinn suðaustan Grímsstaða liggur um Biskupsháls til Víðidals, um dalinn, og yfir Vegskarð, austur á Möðrudalsöræfi.  Biskupsháls er móbergshryggur, sem markar sýslumót og fjórðungsmót milli Norðlendinga- og Austfirðingafjórðungs.  Fornu biskupsdæmin mættust þar líka og þar áttu biskupar að mætast á yfirreiðum sínum.

Dimmifjallgarður er austan Grímsstaða, sunnan Haugsöræfa og nær suður undir Víðidal.  Fjöllin eru 600-800 m há.  Fornar leiðir liggja um hann milli Hólsfjalla og Vopnafjarðar.  Leiðirnar voru villugjarnar og margir urðu úti.
Ferjuás er fell sunnan þjóðvegar við vestanverða Jökulsá á Fjöllum á móts við Grímsstaði.  Þar var ferjustaður fyrrum.

.
[Flag of the United Kingdom]
In English



Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Meira um Ísland


Gönguleiðir
Þingeyjarsýslur Vestari

ÁHUGAVERÐIR STAÐIR UM ALLT LAND

 
TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM