Grísatungufjöll (736m) er fjallgarður í Suður-Þingeyjarsýslu, norðan
vegarins um Reykjaheiði og Höskuldsvatns. Þrír atgeirar fundust þar í
gili haustið 1965 (Þjóðminjasafn). Hinn lengsti var 2,3 m langur. Slík
vopn voru notuð í Evrópu frá 14. til 17. aldar og líkur benda til þess,
að þau hafi borizt til landsins á þessu tímabili. Áður hafði aðeins
einn atgeir fundizt hérlendis (Vatnskarð 1868).