|
Gröf er innst á Höfðaströnd, skammt sunnan
Hofsóss. Þar var fyrrum eitt mesta höfuðból Skagafjarðar.
Bænhúsið að Gröf var lagt af með konungsbréfi árið 1765. Það
stóð þó áfram og var notað sem skemma og var endurbyggt síðar.
Biskup Íslands endurvígði húsið 1953 eftir að það hafði verið
fært í fyrri búning. Það er í umsjá þjóðminjavarðar. Séra
Hallgrímur Pétursson (1614-1674) fæddist þar og á 17. og 18. öldum
var Gröf dvalarstaður biskupsekkna frá Hólum. |