|
Gröf er
eyðibýli í Eiðaþinghá. Þar varð maður nágranna sínum bana í
afbrýðiskasti 1729 með því að skera næstum af honum höfuðið. Morðinginn
var hand- og hálshöggvinn, enda var þetta talið með ógeðfelldari
ódæðum. Höfuð og hönd voru staursett öðrum til viðvörunar. Annálar frá
1692 segja frá því, að fimm heimamenn hafi fundizt látnir, uppþembdir,
þrútnir og kviðsprungnir. Þar fannst silungur á diski, sem var talinn
hafa verið baneitraður öfuguggi. |