|
Ketill gufa Örlygsson var þar um kyrrt einn
vetur samkvæmt Landnámu. Búið var þar til ársins 1948 og þá
yzta býlið í Neshreppi utan Ennis.
Útgerð var mikil frá Gufuskálum líkt og fleiri stöðum á
Snæfellsnesi. Vítt og breitt eru þar minjar og merki um
sjávarútveg og byggð fyrri alda.
Lendingarnar voru í víkinni niður af bænum. Aðalvörin var
Gufuskálavör. Lengd varinnar er um 70 m. rudd í stórgrýti og
hellulögð. Djúpar raufar eru í sjávarklappirnar, merki um
kili bátanna, sem voru dregnir þar á land og hrundið fram á
víxl. Yfir 200 forn byrgi eru í jaðri Bæjarhrauns ofan
þjóðvegarins þar sem talið er að fiskur hafi verið geymdur
og þurrkaður. Byrgin eru topphlaðin og falla mjög vel inn í
hraunlandslagið og því erfitt að sjá þau frá veginum.
Írsk örnefni á þessum slóðum eru fjögur: Írskubúðir eru
nokkru sunnar, vestur af Gerðubergi og Kvarnahrauni.
Þar eru
rústir, sem voru kannaðar 1998.
Þær reyndust vera frá
níundu öld. Íraklettur er við ströndina skammt frá vörinni,
en Írskabyrgi og Írskrabrunnur eru nokkru vestar, niður af
Smáhrauni. Brunnurinn er 16 þrep niður að vatni. Hann
týndist í nokkra áratugi en fannst 1989 aftur og sandur
hreinsaður úr honum. Írskabyrgi er vestur af brunninum. Þar
standa reisulegir veggir. Lagið á byrginu líkist kirkju.
Austurgafl er bogamyndaður og inngangur á vesturgafli.
Milli Bæjarhraunsins og þjóðvegarins, og víðar á svæðinu, eru
margar rústir ókannaðar. Allt svæðið er friðað með öllum
rústum og mannvirkjum. Í landi Gufuskála, á svokölluðum
Gufuskálamóðum, var gerður flugvöllur
árið 1945. Þaðan var áætlunarflug í rúman áratug,
þar til vegasamband komst á
fyrir Jökul. Um Gufuskálamóður fellur Móðulækur. Þegar
mikil leysing er í Snæfellsjökli. Hann
getur orðið
býsna vatnsmikill.
Lóranstöð var reist árið 1959 og rekin af Pósti og síma til
ársloka 1994. Nú er þar langbylgjustöð Ríkisútvarpsins og
mastrið sem nú er næsthæsta, en lengi var hæsta mannvirki í
Evrópu, 412 m.
Það er notað fyrir sendingar stöðvarinnar, sem
sendir út á 189 kHz. Frá 1970 hefur verið þar
veðurathugunarstöð.
Árið 1997 fékk Slysavarnarfélag Íslands og Landsbjörg
Gufuskála til afnota fyrir þjálfunarbúðir við leit og
björgun. Árið 1999 hófst þar eiginleg starfsemi félaganna,
sem voru um það leyti sameinuð í ein samtök undir nafninu:
“Slysavarnafélagið Landsbjörg”. Miklar breytingar og
lagfæringar hafa átt sér stað á húsnæði og aðstöðu til að
mæta kröfum um alhliða þjálfunaraðstöðu. Aðstaðan er nú
mjög góð. Þar eru tvær velbúnar kennslustofur, setustofa,
útiæfingasvæði fyrir alhliða þjálfun og tvær samtals 30
manna svefnpokaíbúðir. Þar er einnig 70 manna matsalur
með setustofu auk gistirýmis í 8 fullbúnum íbúðum fyrir
samtals 60 manns.
Þjálfunarbúðirnar eru notaðar af björgunarsveitum
samtakanna, kvenna- og unglingadeildum, Björgunarskólanum,
lögreglu og slökkviliðum. Jafnframt gefst félagsmönnum
kostur á að leigja orlofsíbúðir, þegar laust er, ýmist eina
helgi eða viku í senn. Auk þess er útivistarskóli
samtakanna staðsettur á Gufuskálum yfir sumartímann, en hann
er ætlaður ungu fólki með áhuga á útivist og fjallamennsku
og þá eru þeim einnig kennd hin fjölmörgu undirstöðuatriði
björgunarstarfa til sjós og lands.
Gufuskálaland er innan landamerkja Þjóðgarðsins
Snæfellsjökuls.
Myndir: Gufuskálavör og Gufuskálar. |