
 |
Hælavíkurbjarg
(258m) er fuglabjarg á milli Hælavíkur og Hornvíkur.
Það var nefnt eftir stökum klettadrangi í sjó framan
bjargsins.
Undir bjarginu er svokölluð Heljarurð, þar sem 18
Englendingar eru sagðir grafnir undir skriðunni.
Þeir stálust þangað til eggja- og fuglatekju og fórust vegna
galdra Halls á Horni.
Innst í bjarginu er Hvannadalur og utan hans er Hvannadalabjarg.
Utan þess eru tröllahlöðin Langikambur, Fjöl og yzt Súlnastapi
í sjó.
Hælavík
er vestan bjargsins og handan hennar er Skálakambur.
Hún er að mestu hömrum girt og lítið undirlendi.
Þar var búið fram undir miðja 20. öldina.
Samkvæmt annálum gekk ísbjörn þar á land árið 1321 og
reif í sig 8 manns. Hinn 2. maí 2011, kl. 09:00
tilkynnti skipstjóri hrognkelsabáts um ísbjörn, sem hvarf í þoku uppi
í hlíðum Hælavíkur. Ekki var vitað um ferðamenn á
svæðinu, en komið var í veg fyrir fyrirhugaða ferð þennan
daginn.
Viðbragðsáætlun var strax virkjuð og dýrið, sem hafði
skokkað alla leið til Rekavíkur, var skotið
samdægurs úr þyrlu landhelgisgæzlunnar. Þetta var
líklega fjögurra ára birna, sem vóg um 150 kíló. |