|
Hafragilsfoss
(27m)
er einn þriggja fossa í Jökulsá á Fjöllum.
Hann er u.þ.b. 2½ km norðan Dettifoss og
blasir við við enda stutts vegslóða, sem liggur yfir einn gíga
hinnar 80 km löngu gígaraðar á þessum slóðum við Jökulsá
austanverða. Fossberinn er þétt grágrýtislag og handan ár er annar
keilulaga gígur, sem Jökulsá hefur rofið við gljúfursmíðina. Margir sleppa þessum útúrdúr en óvíða annars staðar
eru Jökulsárgljúfrin fegurri. Þarna
er bezt að fara um með varúð, því oft hrynja heilu fyllurnar úr
gljúfurbrúnunum.
Fossins er getið í Grettis sögu. |