|
Hallbjarnarvörður eru hæð skammt norðan
Biskupsbrekku. Hallbjarnar Oddsonar frá Kiðjabergi í Grímsnesi er
getið í Landnámu. Hann hafði fengið Hallgerðar, dóttur Tungu-Odds
Önundarsonar á Breiðsbólstað í Reykholtsdal. Eftir brúðkaupið
sátu hjónin um kyrrt veturinn að Breiðabólstað og fór vel á
með þeim. Þegar Hallbjörn tygjaði sig til heimferðar um vorið,
vildi Hallgerður ekki flytja með honum.
Við þetta reiddist
Hallbjörn svo, að hann vafði hári hennar um hönd sér og hjó af
henni höfuðið. Síðan hélt hann með búsmala sinn við þriðja
mann suður fjöll. Snæbjörn galti Hólmsteinsson, frændi
Hallgerðar, safnaði liði og hélt eftir Hallbirni. Þeir fundust á
þessari hæð og Hallbjörn fell þar eftir frækilega vörn.
Sagt er, að vörðurnar á hæðinni séu
jafnmargar þeim, sem féllu í bardaganum. Skömmu eftir
fundinn fór Snæbjörn galti í landaleit vestur um haf með
Hrólfi hinum rauðsenska. Þeir fundu land og sátu þar um
veturinn. Næsta vor var Snæbjörn veginn en líkum er leitt að
því, að þeir hafi fyrstir norrænna manna fundið Grænland
Það er gaman að rölta um þetta svæði og
reyna að finna vörðurnar. |