|
Hallgeirsey
er bær í Austur-Landeyjum, skammt austan Affalls.
Landnáma segir Hallgeir austmann hafa búið þar fyrstan.
Árið 1897 var þar löggiltur verzlunarstaður og eftir að
Kaupfélag Hallgeirseyjar var stofnað þar 1919 var það rekið
á staðnum fyrstu árin. Aðstæður til uppskipunar vöru á
sandinum voru erfiðar. Útibú voru í Þykkvabæ og við
Holtsós (síðar að Seljalandi). Útibúið á Hvolsvelli
var stofnað 1930 og þremur árum síðar voru aðalstöðvarnar
fluttar þangað. Þá voru allar aðstæður til
vöruflutninga gjörbreyttar vegna brúnna yfir Þverá, Affall
og Ála 1932 og Markarfljót 1933. Brúarfoss var síðasta
skipið, sem skipað var upp úr á sandinn vorið 1933.
Kaupfélag Hallgeirseyjar sameinaðist Kaupfélagi Rangæinga á
Rauðalæk 1948. Fyrsti forstjóri Kf. Hallgeirseyjar var
Guðbrandur Magnússon (1887-1975). Hann var einnig
fyrsti ritsjóri Tímans og var forstjóri ÁTVR í u.þ.b. þrjá
áratugi.
Skammt er niður á sanda, þar sem boðnar eru
ævintýraferðir í sexhjóla landgöngupramma.
Í fyrsta sinn í sögu Rangárþings var
sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur fyrir
tilstilli Sigurðar Jónssonar í Hallgeirsey.
Hafnaraðstæður í Grandavör eru mjög góðar frá náttúrunnar
hendi. Sigurðu hóf útgerð í haust og í dag á
útgerðarsamstæðan þrjá báta, tvo 9 tonna og einn 25 tonna.
Bátarnir eru gerðir út á harðfisk, túnfisk og plokkfisk.
Aflinn er unninn um borð og segir Sigurður mikið hagræði af
því. Sjómannadagskrá laugardagsins 4. júní
2007 byggðist á Sandkastalagerð, stígvélasparki, gjarðarkeppni,
nethringjakasti, belgjaskoppi,
koddaslagi, tútturalli, karahlaupi
og reiptogi.
Björgunarsveitir sýndu bjögun úr sjó.
Bryggjufjör frá kl. 20:30. Leikfélag Rangæinga
kom með línu og net. Línudans o.fl.
var til skemmtunar.
Tjaldsvæði opið. Nánari upplýsingar hjá Sigurði í síma 893
6707. |