|
Haukadalur í Dalasýslu er talsvert breiður og
grösugur dalur á milli Miðdala og Laxárdals. Haukadalsvatn
er eina stöðuvatnið í sýslunni, mjög djúpt, mjótt og 4 km langt.
Þar er nokkur silungsveiði og afrennsli þess, Haukadalsá,
er þekkt laxveiðiá.
Miklir skógar, sem voru í dalnum, eru að mestu
horfnir. Þjóðtrúin segir, að ekki megi hreyfa við einu
skógartorfunni, sem er eftir norðan við vatnið. Alfaraleið var um
Haukadalsskarð til Norðurlands. Frá bænum Hamri í sunnanverðum
dalsins sést ekki til sólar í 25 vikur á ári.
Kunnasti sögustaður
dalsins er Eiríksstaðir, þar sem Eiríkur rauði bjó, og annar, kunnur af
endemum, Jörfi, þar sem Jörfagleðin var haldið. |