Héðinsfjörður,

Gönguleiðir Ísland


HÉÐINSFJÖRÐUR
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Héðinsfjörður er 5-6 km langur og rúmlega 1 km á breidd. Vestan hans er Hestfjall (536m) og að austan Hvanndalabyrða (624m). Ekkert undirlendi er meðfram ströndinni og upp bakka að fara til að komast inn í grösugan dalinn. Þar voru nokkrir bæir fram undir miðja 20. öldina. Héðinsfjarðarvatn, allgott veiðivatn, er í utanverðum dalnum. Tveir fjallvegir lágu til Siglufjarðar um Hestskarð og Hólsskarð, sem eru verða æ fjölfarnari. Gömul alfaraleið liggur um Fossabrekkur til Ólafsfjarðar.

Hinn 29. maí 1947 flaug DC-3 flugvél Flugfélags Íslands með 25 manns beint á Hestfjall og allir fórust.  Bók var gefin út um þetta mannskæðasta flugslys hérlendis árið 2009. Snjóflóð voru mannskæð í Héðinsfirði fyrrum. Veturinn 1724-25 féll eitt slíkt á bæinn Vatnsenda og tók 6 mannslíf. Tveir drengir, sem voru ekki inni í bænum, þegar flóðið féll, grófust undir því en gátu losað sig á fjórða degi. Annar þeirra brauzt yfir til Siglufjarðar og sótti hjálp. Ein stúlka fannst á lífi. Í Héðinsfirði er skýli Slysavarnarfélags Íslands.

Samkvæmt vegaáætlun verður komið á vegasamband um tvenn göng frá Ólafsfirði um Héðinsfjörð til Siglufjarðar 2010.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM