|
Heggstaðir
voru þingstaður Andakílshrepps og þar er hringlaga rúst, sem er friðlýst
sem forn dómhringur. Suður frá bænum er kletturinn Gálgi undir
Gálgaholtum og rétt norðan þeirra er Gálgaskarð. Engar sagnir eru til
af aftökum þar en munnlegar heimildir geta funda mannabeina þar.
Rannsóknir benda til, að margir ætlaðir dómhringir séu ekki frá
þjóðveldistímanum. Þó er talið að einhvers konar girðingar hafi tíðkast
á hreppaþingstöðum. Dómar voru lesnir hér a.m.k. frá lokum 15. aldar.
Í
Egilssögu er getið landnámsmannsins Heggs á Heggsstöðum. Þegar Egill
Skallagrímsson var sjö ára var hann að leik við Grím, 11 ára son Heggs,
og varð undir í leiknum. Þá mun Egill hafa drepið son hans. Í
eftirmálum þessa atviks, bardaga á Laxfit við Grímsá, særðist Heggur til ólífis og Kvígur bróðir hans
féll. Munnmæli herma, að bræðurnir og húskarlar Heggs hafi verið
grafnir innan dómhringsins. Einnig er til sú sögn, að ábúendur
Heggstaða skuli endurbæta hringinn, þannig að Heggi og körlum hans
búnist þar vel. |