|
Helgafell er kirkjustaður við rætur samnefnds
fells í Helgafellssveit á Þórsnesi, sunnan Stykkishólms. Kirkjan,
sem nú stendur þar, var reist árið 1903 og vígð á nýársdag
1904. Henni svipar til gömlu kirkjunnar í Stykkishólmi, sem var
síðast gerð upp 1998. Samkvæmt Eyrbyggju reisti Þorsteinn
þorskabítur, sonur Þórólfs mostraskeggs landnámsmanns, sér þar
bú fyrstur manna. Einn sona hans var Þorgrímur, sem Gísli Súrsson
vó. Eftir skilnað Barkar og Þórdísar Súrsdóttur tók Snorri goði
Þorgrímsson við búi þar.
Hann lét byggja þar kirkju og á síðari
hluta ævinnar skipti hann á búi við Guðrúnu Ósvífursdóttur
að Laugum í Sælingsdal og bjó þar til dauðadags. Leiði Guðrúnar er norðan við miðja
kirkjuna, utan kirkjugarðsins. Það er afgirt og snýr að kirkjunni að
írskum sið. Minnisvarðinn á því er úr steini úr Helgafelli. Það var
sett upp árið 1979. Guðrún er sögð hafa gerzt einsetukona í klaustri
að Helgafelli, er árin færðust yfir hana. Rústir þess eða einhvers annars mannvirkis
eru uppi á fellinu. Sú Þjóðtrú ríkir á Helgafelli, að sé
gengið þrisvar rangsælis umhverfis gröf Guðrúnar og síðan
þegjandi, án þess að líta við, upp á fellið og án slæmra
hugsana, rætist ósk viðkomandi, þegar upp er komið, ef hann eða
hún skýrir ekki frá því, sem óskað er. Vegalengdin frá
Reykjavík er um 169 km um Kerlingarskarð og Hvalfjarðargöng. |