|
Hengill
er 803 m hátt móbergs- og grágrýtisfjall (e.t.v. umturnaður stapi)
við rætur Reykjanesskagans, skammt frá þjóðleiðinni austur fyrir
fjall frá höfuðborgarsvæðinu.
Hann er líklega hluti megineldstöðvar, enda gætir mikillar
jarðhitavirkni allt umhverfis.
Hæsti tindurinn heitir Skeggi.
Suður úr Hengli gengur rýólítfjallið Sleggja.
Dalirnir sunnan Hengils eru frá vestri til austurs:
Innstidalur, Miðdalur og Fremstidalur.
Hengladalaá kemur upp í þeim og rennur niður í Ölfus í
Reykjadalsá.
Innstidalur er milli Hengils og Skarðsmýrarfjalls (597m).
Þar er stór gufuhver og ölkelda er í Hengladölum.
Sagnir segja frá útilegumönnum í Henglinum og þar fannst
hellir með mannvistarleifum í stórum kletti norðvestan gufuhversins.
Marardalur er sigdalur vestan Hengils undir Skeggja.
Dalbotninn er grasi vaxinn og sléttur. Umhverfis eru
hamrar og skriður og austur úr dalnum er þröngt gil, sem er
hestfært. Dalurinn var vinsæll áfangastaður ferðamanna
fyrrum. Árið 1881 var maður drepinn þar í ölæði, þegar
hann reyndi að afstýra áflogum. Þarna voru einhverjar
síðustu stöðvar hreindýra í Reykjanesfjallgarði.
Ölfusingar létu naut sín ganga sumarlangt í dalnum og lokuðu
gilinu. Einnig má nefna Bolavelli við Húsmúla, sem
voru nýttir á sama hátt, en þar voru þau oft hættuleg
ferðamönnum. |