|
Fyrrum
stórbýlið Herdísarvík, sem nú er í eyði, stendur við samnefnda
vík við rætur sunnanverðs Reykjanesskagans.
Hamrar Herdísarvíkurfjalls (329m) gnæfa yfir til norðurs og
nokkrir hraunstraumar hafa runnið niður það til sjávar.
Enn þá mótar fyrir rústum verbúða meðfram sjónum og þurrkgörðum
(friðlýst 1973).
Sagan
segir, að Herdís hafi búið í Herdísarvík og systir hennar, Krýsa,
í Krýsuvík. Þeim kom
illa saman og beittu fjölkyngi hvor á aðra.
Krýsa lagði svo á, að tjörnin í Herdísarvík opnaðist til
hafs, sem bryti bæinn og allur silungur yrði að hornsílum.
Þar skyldu og drukkna tvær áhafnir.
Þetta þykir hafa gengið eftir.
Herdís lét ekki sitt eftir liggja og lagði svo á, að
silungurinn í Kleifarvatni
yrði að loðsilungi.
Þjóðskáldið
Einar Benediktsson, lögfræðingur (1892) og athafnamaður,
(31.10.1864-21.01.1940) bjó í húsi sínu í Herdísarvík síðustu æviárin.
Árið 1935 ánafnaði hann Háskóla Íslands jörðina.
Kennarar í Félagi háskólakennara eiga þess kost að dvelja
þar í leyfum. |