|
Hesteyrarfjörður
er vestastur Jökulfjarða. Hann
er girtur bröttum og skriðurunnum fjöllum niður að sjávarmáli með
takmörkuðu undirlendi. Austan
fjarðarmynnisins er Lásafjall og að vestan er Nóngilsfjall.
Slétta er eyðibýli og fornt höfuðból talsvert langt utan og
vestan fjarðarmynnisins á og þar er viti.
Stekkeyri er innan Hesteyrar að vestanverðu.
Þar var Hekla, hvalstöð norska fyrirtækisins Brödrene Bull,
byggð árið 1894 og eyrin fékk nafnið Heklueyri í daglegu tali.
Þorpið Hesteyri myndaðist í kringum þennan rekstur.
Stöðinni var breytt til síldarverkunar, þegar Norðmenn hættu
hvalveiðum og rústir mannvirkja sjást þar enn þá.
Hlíðarburkni (Cryptogramma crispa) er fágæt burknategund, sem
vex í hlíðinni ofan eyrarinnar.
Verzlunarstaðurinn
á Hesteyri fékk löggildingu 1881 eftir að byggð hafði verið þar
um aldir og Ásgeirsverzlun á Ísafirði byggði þar útibú.
Aukin umsvif í atvinnurekstri Stekkseyri styrkti byggðina, útgerð
var talsverð á árabátum og síðar litlum vélbátum.
Reksturinn lagðist af, þegar síldin hvarf 1940 og íbúarnir
yfirgáfu staðinn hver af öðrum þar til enginn var eftir 1952.
Flestir urðu íbúarnir 80 og þar standa enn þá 12 hús, sem
eru notuð til sumardvalar. Hesteyri
var læknissetur og þingstaður hreppsins síðustu árin og þar var líka
símstöð og loftskeytastöð. Gamla
læknishúsið er notað til ferðaþjónustu.
Þar eru kaffiveitingar, gistiaðstaða í svefnpokum og eldhús
fyrir gesti.
Gönguleiðir
Frá Hesteyri um Kjaransvíkurskarð.
Gengið er um Innri-Hesteyrarbrún og vörðuð leið í skarðið.
Þá er líka hægt að ganga til vesturs um Fljótsskarð í Fljótavík.
Góð
gönguleið liggur frá Hesteyri um Hesteyrardal með Hesteyrará að Látrum
í Aðalvík.
Gott
útsýni yfir þorpið fæst af Höfða ofan byggðarinnar.
Þá er gönguleið um Götuhjalla
með ströndinni undir Nóngilsfjalli á Eyrar.
Þaðan liggur skýr gata yfir Staðarheiði að Sæbóli í
Aðalvík. |