|
Hjálparfoss er tvöfaldur foss neðst í Fossá í
Þjórsárdal, rétt áður en hún sameinast Þjórsá. Svæðið
umhverfis hann heitir Hjálp og er tiltölulega gróið. Það ber
þó merki um stöðugar ásóknir Heklu kerlingar í gegnum aldirnar.
Blágrýtismyndarnirnar umhverfis fossinn eru fallegur rammi um
hvítfyssandi vatnið. Nafnið Hjálp varð til í munni þeirra, sem
komu úr erfiðum ferðum yfir Sprengisand og fundu þar snapir fyrir
hestana. Landsvirkjun hefur látið græða mikið land í
Þjórsárdalnum og ekki sízt vestan Sámstaðamúla. |