|
Hljóðaklettar í Jökulsárgljúfrum eru sérkennileg þyrping stuðlabergskletta í
mynni Vesturdals niðri við Jökulsá á Fjöllum. Þessir klettar munu vera gígtappar
gígaraðar, sem síðara hamfarahlaup Jöklu skolaði í burtu fyrir u.þ.b. 3000 árum.
Stuðlarnir hafa alls konar legu og framkalla ýmsar kynjamyndir og rósettur.
Nafnið er
dregið af smábergmáli árniðarins, sem líkist helzt suði. Það er upplagt að ganga
frá Hljóðaklettum suður í Hólmatungur (2½-3 klst.). Skammt sunnan Klettanna eru
Karl og Kerling, tveir hraunstandar neðst í gljúfrinu. Karlinn er 60 m hár en
Kerlingin lægri og grennri. Tröllahellir, handan árinnar, var bústaður þeirra áður
en þau urðu að steinum. |