|
Hljóðaklettar í Jökulsárgljúfrum eru sérkennileg þyrping stuðlabergskletta í
mynni Vesturdals niðri við Jökulsá á Fjöllum. Þessir klettar munu vera gígtappar
gígaraðar, sem síðara hamfarahlaup Jöklu skolaði í burtu fyrir u.þ.b. 3000
árum.
Stuðlarnir hafa alls konar legu og framkalla
ýmsar kynjamyndir og rósettur. Nafnið er dregið af smábergmáli árniðarins, sem
líkist helzt suði. Það er upplagt að ganga frá Hljóðaklettum suður í
Hólmatungur (2½-3 klst.). Skammt sunnan Klettanna eru Karl og Kerling, tveir
hraunstandar neðst í gljúfrinu. Karlinn er 60 m hár en Kerlingin lægri og grennri.
Tröllahellir, handan árinnar, var bústaður þeirra áður en þau urðu að steinum. |