|
Hof
er bær, kirkjustaður og fyrrum prestssetur í Álftafirði.
Katólsku kirkjurnar voru helgaðar Maríu guðsmóður.
Prestssetrið var flutt að Djúpavogi 1905 og kirkjan var byggð
1896. Þarna bjó Böðvar
hvíti Þorleifsson, sem „nam land inn frá Leiruvogi dali þá
alla, er þar liggja og út annan veg til Múla…; hann reisti þar
hof mikið”, eins og Landnáma segir.
Síðu-Hallur bjóð þarna síðar, áður en hann flutti að
Þvottá eftir að dökkar dísir höfðu drepið Þiðranda, son
hans. Í Hofstúni sést
Þiðrandalág, þar sem hann var drepinn.
Séra Bjarni Guðmundsson var síðasti katólski presturinn á
Hofi. Hann stóð einn presta í Múlaþingi gegn boðun hins nýja
siðar og lét af prestskap fremur en að gera það. |