|
Hof
er í austanverðum Vatnsdal. Samkvæmt
Landnámu settist Ingimundur gamli Þorsteinsson þar að og nam allan
dalinn upp frá Helgavatni og Urðavatni austan ár.
Vatnsdælasaga fjallar um Ingimund og hans ættingja.
Hrolleifur
hét maður, sem Ingimundur hafði gert vel við.
Landnáma lýsir Hrolleifi betur og segir frá búsetu hans í
Hrolleifsdal, sem gengur suðaustur í hálendi Skagafjarðar og er nú
í eyði. Hann var kallaður
Hrolleifur hinn mikli og var kappi mikill en óvinsæll.
Hann gerði sér dælt við Hróðnýju Unadóttur í Unadal í
óþökk fjölskyldunnar. Oddur Unason og félagar hans sátu eitt sinn fyrir
Hrolleifi, sem vó Odd og tvo menn aðra.
Vopn bitu ekki á hann vegna fjölkyngi móður hans, Ljótar.
Hann var rekinn úr héraðinu og sendur til Ingimundar gamla,
sem fékk honum bústað í Vatnsdal.
Honum tókst að efna til illinda við Ingimund og syni hans
vegna veiðiréttinda í Vatnsdalsá, sem enduðu með vígi Ingimundar.
Hrollaugur launaði greiðann með því að skjóta spjóti í
gegnum Ingimund, þar sem hann stóð á Goðhóli, sem er í túninu.
Ingimundur sagði banamanni sínum að flýja sem skjótast, ella
yrði hann drepinn.
Fagur
trjálundur er hjá Hofi. Þar
var gróðursetning hafin árið 1927 og meðal trjáa eru íslenzkar
aspir. Lundurinn var girtur
árið 1957.
Kvennaskóli
Húnvetninga var starfræktur að Hofi á árunum 1882-83. |