|
Hof
er kirkjustaður og prestssetur í Hofsárdal í Vopnafirði.
Þar voru katólskar allraheilagrakirkjur. Kirkjan á Hofi hefur verið útkirkja frá Vopnafirði síðan
1905 og núverandi kirkja er frá 1902.
Eyvindur vopni, föðurbróðir Steinbjörns körts Refssonar,
gaf honum land milli
Hofsár
og
Vesturdalsár, þar sem hann
bjó fríðu búi. Hann
var eyðsluseggur og missti lönd sín til Þorsteins hvíta Ölvissonar,
sem settist að á Hofi. Hofverjar eru komnir frá honum (sjá Þorsteins sögu hvíta
og Vopnfirðinga).
Enn þá sjást gamlar tóttir í landi Hofs, bæði innan túns
og utan. Þar eru
svonefnd Hoftótt og önnur sem kallast Hestarétt Brodd-Helga.
Félagsheimili Vopnfirðinga, Staðarholt (1952), er í
Hofslandi.
Sigurður Þórarinsson (1912-1983),
jarðfræðingur, fæddist að Hofi.
Teigur. |