|
Höfði er hæðóttur hrauntangi, sem gengur út í
Mývatn að austanverðu. Hann hét upphaflega Hafurshöfði.
Héðinn
Valdimarsson, verkalýðsforkólfur og forstjóri, byggði sumarbústað yzt á höfðanum.
Þar gróðursetti fjölskyldan mikið af trjám og skrautjurtum.
Hreppurinn fékk síðar Höfða að gjöf, en afkomendur Héðins hafa leyfi til búsetu
þar.
Frá hæstu leitum
höfðans er útsýni frábært yfir Mývatnssvæðið og einkum sækir
fólk niður að Kálfastrandarvogi, einhverjum fegursta stað við
Mývatn, til að skoða sérstakar hraunmyndanir í vatninu,
Kálfastrandarstrípana eða öðru nafni Klasana. Fyrstur til að
byggja bæ í Höfða var hagleikssmiðurinn Bárður Sigurðsson (1912)
og enn þá stendur nokkuð af frábærlega vel hlöðnum veggjum hans.
Á sumrin þarf að greiða aðgangseyri. |