|
Hoffell
er stórbýli í Nesjum.
Landnáma segir, að Auðun hinn rauði hafi keypt þar land af
Hrollaugi og m.a. reist þar hof.
Meðal verðmætra steina, sem finnast á landareigninni, eru
marmari, silfurberg, ópalar og jaspís.
Stærsti silfurbergssteinninn, sem fannst þar, vóg 175 kg.
Hann var sendur til Reykjavíkur og þaðan var hann seldur til
Þýzkalands á háu verði.
Talsvert
er um ríólít í fjöllum og flest bendir til þess, að þetta
umhverfi hafi verið megineldstöð fyrrum.
Námavinnsla var stunduð í Hoffellslandi fyrir tilstuðlan Guðmundar
Hoffells (1875-1945).
Jón Helgason, sýslumaður, bjó á Hoffelli í lok 18. aldar.
Hann fetaði ekki troðnar slóðir og átti í miklum útistöðum
við marga.
Hann var dæmdur í sektir og frá embætti að lokum.
Afkomendur hans hafa búið að Hoffelli síðan. |