|
Hofmannaflöt er rennisléttur völlur austan Ármannsfells og
norðan Þingvalla. Hún er kringd fjöllum á þrjá vegu og opin
móti suðri. Austan hennar er Mjóafell og norðan þess Goðaskarð.
Norðan flatarinnar er allsérstætt fell, sem lítur út eins og
sæti og ber nafn með rentu, Meyjarsæti (237m). Beggja vegna þess
eru Sandkluftir, þröng skörð, sem hafa bæði borið umferðina
milli Sandkluftavatns og Hofmannaflatar öldum saman.
Fyrrum lá
bílvegurinn um eystra skarðið en síðustu áratugina hefur vestara
skarðið verið notað. Aðalástæða þess er, að sandskaflar
lokuðu oft veginum austan Sandkluftavatns, sem gerist tæpast vestan
þess. Gömul, friðlýst veghleðsla upp í eystra skarðið
sunnanvert sést enn þá greinilega.
Flötin sjálf var löngum
ræktuð og slegin fyrr á tímum og þar var kærkominn
áningarstaður ferðamanna, sem komu langa leið um Kaldadal.
Ármannssaga segir frá leikum, sem fóru fram á Hofmannaflöt,
þegar helztu tröll landsins hittust þar. Í vorleysingum safnast
vatn á flötina og talsvert djúp tjörn myndast. Margir urðu fyrir
því að missa bíla sína niður um ís á tjörninni, þegar
vegurinn lá um eystra skarðið. Eyfirðingavegur lá sunnan
Langjökuls
og Skjaldbreiðar niður Goðaskarð á
Hofmannaflöt.
Hellisskarðsleið er forn.
Hún liggur um Goðaskarð frá Hofmannaflöt, hjá Gatfelli og
austur um Skjaldbreiðarhraun norðan Skriðunnar. Þaðan
á Hlöðuvelli sunnan þess og í Hellisskarð, sem leiðin heitir
eftir. Það er á milli Högnhöfða og Kálfstinds og þaðan
er útsýni fagurt á góðum degi. Hraunfoss úr því
sameinast Svínahrauni. Leiðin liggur áfram til austurs
að Helludal austan Geysis. Pálmi Hannesson, rektor,
sagði þessa leið einhverja hina fegurstu á landinu. |